
Ég er kominn með Gemsa, það var
helvítinu erfiðara þótt við vorum að reyna svindla hann útá
útlendingaskírteinið hans Tashi. Það á að vera í fullkomnu lagi en
eftir að ég og Tashi vorum búnir að hendast niðrí gemsabúð 3-4
sinnum án árangurs þá rúllaði ein vinkonan hans Tashi með (innfædd)
og púff! Ég var komin með síma í hendurnar um kvöldið áður en Tashi
fór til US and A.
Fallega númerið er
08031677491 ef aðdáendur eru
staddir í Japan, en ef skype er milliliðurinn hjá fólki þá slær það
einfaldlega inn +818031677491. Þá ætti rödd mín að svara ef ég
er ekki á æfingu eða vinna ólöglega vinnu.
Einsog ég sagði, þá er Tashi farinn
til bandaríkjanna í 2 vikna frí. Þar ætlar hann að spila með
óvinsælasta körfuboltaliðinu (af því þeir vinna alltaf) í árlega
tíbeska körfuboltamótinu og heimsækja móður sína á spítalann. Á
meðan dvöl hans í ameríkunni stendur kvatti ég hann sterklega til
að fjárfesta í einhverjum pimp-ass fötum, það þýðir ekki að
maðurinn predikar thug-life yfir mér og klæðir sig síðan einsog
nerdy-ass Tom Green á almannafæri. Þar sem ég hef nú tekið við
ensku kennslu hans á meðan hann er í burtu, gerðist ég skyldugur
til þess að kaupa mér samskonar khaki buxur og pólóskyrtu einsog
hann á, svo ég líti ensku kennslulega út. Þar sem ég á ekki allan
pening í heimi og er nískur andskoti ofan á það, mun ég mæta í tíma
fyrir framan enskuþyrsta japani í sama settinu í 2
vikur.
Ég er búinn að mæta í samtals 5
karate tíma og komin með búning til þess að horfa á sjálfan mig í í
speglinum á meðan æfingu stendur. Ég hefði getað verið búinn að
mæta í miklu fleiri tíma ef ég væri ekki skuldbundinn
forfallakennslunni en það sem ég græði á því er öll íbúðin hans
Tashi á meðan hann er í burtu og svo smá summa þegar hann kemur til
baka. Karate stíllinn sem ég er að einbeita mér að kallast
"Kyokushin" eða "Hinn últímati sannleikur" en sannleikurinn er sá,
að þetta er brútal Karate. Kyokushin hefur oft á tíðum verið kallað
"knock out karate" af því bardagarnir eru alvöru bardagar, einsog
box eða muay thai. Nema bara a la karate style í karate búningum.
Mæli með að fólk fletti upp orðinu "kyokushin" á youtube ef það
vill sjá svöl rothögg eða öllu nær, rotspörk!
Einn karate kennarinn talar mjög
góða ensku og er ég nánast í daglegu sambandi við hana. Hún t.d.
plöggaði mér aðgang að sumar æfingabúðum í næsta mánuði sem
fresturinn á var þegar útrunninn og svo fór ég útá lífið með henni
og fleiri kyokushin svartbeltingum í gærkvöld, þannig það mætti
segja að ég er strax kominn inní innsta hring. Allir aðrir þarna
tala enga ensku þannig ég get æft mig nóg í japönskunni. Ég
heimsótti þetta dojo nokkru sinnum á síðasta ári og var svo í
e-mail sambandi áður en ég fór aftur út þannig þau bjuggust við
mér.
Hitinn og rakinn minnir á Hróa,
alveg útí hött. En samt, ekki mikil sól. Ég krækti mér í góðan
sólbruna fyrsta daginn hérna en síðan þá er bara skýjað, og
rigning. Rigningartímabilið er í hámarki núna og hefur það fært mér
ágætt kvef.Annars hef ég það bara þrusufínt fyrir utan hversu góða
veðurspá ég er að frétta frá Íslandi. Tvö síðustu sumur voru
frekar súr en sumarið þar á undan var met sem sló út marga áratugi,
akkúrat þegar ég var líka í Japan. Ég ætla að nota tækifærið og
birta hér þakkir mínar til veðurguðanna og loforð um, að þegar ég
dey og fer yfir í heim andanna þá mun ég finna þá í
fjöru.
Segjum þetta gott í bili og sjáum
hvað setur í næsta bloggi.
Ást og friður,
Óli.